Skip to main content

Sveinspróf í flugvirkjun verður haldið helgina 16-17. nóvember næstkomandi, ef næg þátttaka næst.

Eftir september 13, 2024Fréttir

Undirbúningsámskeið fer fram dagana 11.-15. nóvember, milli kl. 18:00 – 21:00 í sal félagsins að Borgartúni 22. 3. hæð.

Umsóknir þurfa að berast fyrir 27. október 2024. Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu félagsins, undir Eyðublöð og sendist til Flugvirkjafélag Íslands, Borgartúni 22, 105 Reykjavík, eða á [email protected]

Prófgjald kr. 5.500.- Námskeiðsgjald kr. 35.500.-

Þeir sem hafa verið meðlimir FVFÍ í 6 mánuði greiða ekki námskeiðsgjald.

 

Nánari upplýsingar hjá skrifstofu félagsins í síma 562 1610.